shamballa 13D
SHAMBALLA 13 D
með Lilju og Ella

Nýtt líf
Aukið frelsi!
Aukin gleði!
Aukin hamingja!
Betri líðan!
Meiri sköpunarkraftur!
Aukin næmni!
Hærri tenging!
Sterkara innsæi!
Enn betri meðferðaraðili!
Bætt samskipti við fólk!
Skilningur á samspili hugar og líkama!

Þróunar og sjálfseflingar námskeið
4 dagar Í Reykjavík hefst 5.september 2009

Skráðu þig núna!
Shamballa 13 D er fyrir
1. þá sem vilja auka næmni sína!
2. þá sem vilja öðlast frelsi!
3. þá sem eru skyggnir og vilja sjá inn í hærri víddir!
4. þá sem eru í leit að ljósinu!
5. þá sem vilja auka innsæi sitt og hugarkraft!
6. þá sem vilja auka sköpunarhæfni sína!
7. þá sem vilja breyta lífi sínu og öðlast meiri gleði!
8. þig sem ert í umönnunarstörfum !
9. Þá sem vilja efla ljós- og kærleikstengingu sína við Uppsprettuna eða Skaparann
10. Fyrir þá sem þegar hafa lært Reiki og vilja víkka út og hækka orkutengingu sína.
11. Fyrir þá sem hafa áhuga á eigin sjálfseflingu
12. Fyrir þá sem hafa áhuga á innri vinnu til að bæta vellíðan í lífi og starfi
13. Fyrir meðferðaraðila sem vilja bæta við nýrri færni
14. Fyrir alla sem áhuga hafa á andlegri vinnu
15. Fyrir alla heilara sem vilja verða enn betri miðlarar fyrir kærleiks orku Skaparans
16. Fyrir alla þá sem vilja víkka út ljóslíkama sinn.
17. Fyrir þá sem vilja hreinsa til í tilfinningalíkama sínum
18. Fyrir alla aldurshópa
19. fyrir stjórnendur sem vilja bæta samskiptin
20. fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem vill skilja betur samspil hugar og líkama


Vitnisburður Reikimeistara a Islandi
Kæru lesendur
Mig langar til að deila með ykkur reynslu sem að mínu mati er mjög merkileg.
Ég er kona sem á nokkrum árum tók reiki heilun og varð reikimeistari sem gerir mig að kennara eða lærimeistara í reiki heilun. Ég hef vígt nokkra í reiki og taldi að það væri góð leið fyrir mig og aðra til að öðlast meiri sjálfsþekkingu og efla hæfileika okkar til heilunar á sjálfinu og til að heila og gefa kærleika, hjálpa okkur öllum til að verða heil.
Reynsla mín af notkun reiki er í sjálfu sér ekki slæm en það voru ýmsir þættir sem ég var ekki fyllilega sátt við. Ég gat til dæmis ekki alveg verið ég sjálf „já þetta hljómar einkennilega“ ég varð oft á tíðum fyrir mjög sterkum tilfinningum sem ég vissi að voru ekki mínar. Ég reyndi ýmsar aðferðir til að þessar tilfinningar kæmust ekki svona nærri mér. Ég sendi ást, kærleika og ljós en einnig reyndi ég ýmsar blokkeringar sem öðrum hafði gengið vel að nota en ekkert gekk. Þetta tímabil var erfitt fyrir mig og þó sérstaklega þá sem stóðu mér næstir. Ef ég var ekki á varðbergi eða gætti mín í hegðun og tali var oftar en ekki ýmislegt sem hljómaði einkennilega komið í loftið.  Ég var orðin mjög lúin á að fá aldrei frið. Svo var að að ég kynntist Lilju Petru og Ella og hafði orð á að það væri ekki venjulegt hvernig þetta væri. Þau voru svo yndisleg að bjóða mér á shamballa námskeið hjá sér. Ég var nú svona treg til  og taldi að það væri ekki fyrir mig. En eftir að Lilja talaði við mig um námskeiðið aftur og aftur og ég var þá búin að vera að óska eftir svörum, þá fór ég og sá ekki eftir því. Á þessu námskeiði upplifði ég þvílíka frelsun að ég get varla lýst því nema þá; það var eins og þú værir búin að vera í allt of þröngum skóm og færir úr þeim.
Mikill léttir og sviði sem ég hafði eftir hryggsúlunni og hélt að ætti bara að vera, hvarf. Svona hljómar þetta. Ég vil hvetja alla sem eru að hugsa um að fara í þessi mál að íhuga val sitt vel. Í dag nokkrum mánuðum eftir þetta námskeið er ég sátt. Ég get auðveldlega stjórnað tilfinningum sem koma upp og með einföldum hætti sent eins og fyrr heilun til viðkomandi. Nema nú get ég líka sagt „NEI“ við erum í pásu þú færð heilun og það gerist án þess að ég verði úrvinda eða pirruð. Ég var áður en ég fór líka að senda kærleiks með ljósi og gleði til hjálpar en sat eftir með einkennilega lítil skil á milli mín og þeirra sem ég hjálpaði. Það var eins og ég hefði ekki varnir. Nú hef ég endur heimt mátt minn.
Með kærleiks kveðju Brynja B. Nuddari og hbs jafnari.

Frá Kiri
Lilja, Eftir námskeiðið hefur líf mitt verið.... Sköpunin. Stórkostlegt.

Frá Rödu.
Ég er svo hamingjusöm yfir að hafa fengið tækifæri til að kynnast ykkur. Ég hef það á tilfinningunni að ég geti faðmað allan heiminn og verið eining með honum. Það er yndislegt. Ég geri ráð fyrir að það sé þannig sem maður skynjar óskilyrtan kærleika. Þið breyttuð lífi mínu!

Shamballa kom með gleði aftur inn í líf mitt! Það er eins og að hætta að reykja þegar matur og drykkur verður bragðmeiri og betri. Ekki það að ekki sé hægt að njóta reykinga, langt frá því. En það er þessi fíni munur sem ég er að tala um sem svo erfitt er að lýsa með orðum, heldur þarf að upplifa það. Shamballa umbreytir lífinu. Það breytti lífi mínu og er enn að breyta því. Ég finn fyrir frelsi og get gert hvað sem er. Ég veit að allt er mögulegt þegar ljósið og kærleikurinn er annars vegar. Það gildir ekki bara fyrir mig. Ég sé breytingarnar allt í kringum mig. Shamballa gaf mér frelsi til að vera ég sjálf. Hugrekki til að tjá sannleika minn og skilning á heiminum í kringum mig. Ég gerði mér grein fyrir mínum hæfileikum.


Shamballa MDH 13 D


Á þessu námskeiði muntu upplifa kærleika og frelsi sem þú hefur aldrei skynjað áður. Þú munt upplifa 13 virkjanir sem hjálpa þér að taka á móti meira ljósi gegnum sjálfsvitund þína. Við munum einnig tengja við  kosmískar og alheims ásýndir  Shamballa og hinna uppljómuðu meistara og okkar sjálfra.  Virkjun á hinum helgu rúmfræðilegum formum og eldstöfum hinna fimm helgu tungumála í öllum líkömum þínum. Djúp hreinsun á ígræðslum og ýmsum tilvistum sem finnast í orkulíkömum þínum. Þetta mun veita þér sterka tengingu við Sjálfsvitund þína og gegnum þessa tengingu muntu byrja að gera þér grein fyrir hver þú raunverulega ert. Hreinn KÆRLEIKUR. Einnig munum við vinna með microtronið, Mahatma spiritualisation og fleira. Vinna milli kennsludaga auðveldar þér að komast í gegnum breytingarnar.


I hluti

ÁRUHREINSUN (FYRIR NÁMSKEIÐ, FRAMKVÆMT ÚR FJARLÆGÐ) Áður en námskeiðið hefst munum við framkvæma djúphreinsun á orkusviði þínu í samræmi við þinn æðsta vilja. Þetta auðveldar þér m.a. að meðtaka vígslurnar og vinna með orkunni sem verður á námskeiðinu.

FYRRI DAGUR kl 9-17; Shamballa, fjölskyldan, shamballa hugsjónin, shamballasjóðurinn og Shamballa association. Tilfinningalíkaminn, hreinsun á fyrstu þremur orkustöðvunum, fyrstu 3 virkjanirnar, hjartastöðin, opnun, útvíkkun, sálarstjarnan, MAHATMA, Uppsprettan, hver ertu, hvert stefnirðu, hvað ertu? 4. virkjun, jarðtenging orkunnar. Hugsun er beintengd heilsu og vellíðan! Við förum einnig yfir áhrif lífsstíls og bendum á leiðir til bóta.

Annar DAGUR  kl 9-17; framhaldandi vinna við hjartastöðina og sálarstjörnuna, hálsstöðin opnuð, unnið með tónun, karmísk hreinsun, uppljómunarferlið hvað er það, Antakarana-regnbogabrúin, DNA,  3.augað, hvað verðskuldar þú? 3 vígslur, jarðtenging orkunnar. Tilfinningarnar og hvaða áhrif þær hafa á líf okkar og líðan.

Þriðji DAGUR: Hið kosmíska hjarta, DNA virkjanir og hreinsun ýmissa kóða sem halda aftur af okkur. Hærri orkustöðvarnar, virkjun og uppbygging ljóslíkamans, styrking tengingarinnar við Uppsprettuna.  8.-10. virkjun.

Fjórði DAGUR: Einingin, sköpun eigin raunveruleika, orkan í dag, áframhaldandi útvíkkun og virkjun ljóslíkamans, ýmsir  kóðar. 3 virkjanir

Fjölmargar hugleiðslur, fróðleikur, kærleikur og gleði.


Námskeiðið kostar  49000 krónur. Innifalið er allt námsefni, ítarefni. Hægt er að semja um greiðsludreifingu.

Nauðsynlegt er að greiða 5000 króna staðfestingargjald við skráningu þar sem fyrr verður ekki hægt að framkvæma áruhreinsunina.

Hægt er að nota shamballa orkuna til heilunar sjálfrar þín og annarra.

Kennarar eru Lilja Petra Ásgeirsdóttir og Erlendur Magnús Magnússon Shamballa 13D Md meistara kennarar.

Skráning með tölvupósti


Heim      Áruhreinsun   Ýmsar greinar    Jarðarvinna   
Hrifkjarnar  Námskeið   Frásögn af Búlgaríu ferðinni
puls.is heilsuvörur
Mynd frá Búlgaríu námskeiði vorið 2005
þar sem ríkti samstaða, kærleikur, gleði og samhygð.
Shamballa mdh grunn námskeið
Fyrir þá sem hafa lítinn bakgrunn eða eru að kynnast andlegri vinnu í fyrsta sinn.
Farið er í uppbyggingu orku líkamans. Jarðtengingu og tengingu við sálina.
Unnið að hreinsun orkulíkamans.
Notaðar eru ýmsar æfingar til að læra að skynja orkulíkamann og átta sig á hver hæfileiki hvers og eins er.
Opnun og jarðtenging shamballa orkunnar.

• Æfing í að skynja og hreyfa orku í líkama þínum.
• Sjúkdómar og tilfinninga líkaminn
• Hreinsun á gömlu karma og tilfinningamynstri
• Vígsla inn í demants ljós Shamballa
• Lærðu að leiða gegnum þig heilandi orku
• Áruhreinsun fyrir námskeið
• Handbók
• Viðurkenningarskjal frá Shamballa School of Esoteric Science
• Enginn fyrri kunnátta eða reynsla nauðsynleg
Þetta er 2 daga námskeið samtals 16 stundir
Innifalin er áruhreinsun og námskeiðsgögn
Verð  25 þúsund.
Shamballa mdh  námskeið
Grunn    námskeið
Grunn kennara námskeið
Shamballa 13D  námskeið

Við höfum kennt shamballa á Íslandi, Bandaríkjunum, Noregi, Spáni, Búlgaríu, Rúmeníu, Kamerún og Kýpur frá árinu 1998

Við erum nýkomin heim af kennara námskeiði með Hari Baba og tilbúin til að deila með ykkur visku og kærleika Melchizedeks.

Free Web Hosting