barnahugleidsla-shamballa.page
Barna hugleiðsla
Hugleiðslur fyrir börnin-þýtt og endursagt.

Karyn Mitchell höfundur  Reiki bókarinnar leggur til að þið sýnið barninu
handarstöðurnar fyrir hugleiðsluna.

(*1 Setjið þið nú hendurnar ofan á höfuðið, svona.  Setjið hendur ykkar á
hvirfilsstöðina)
Lokið augunum og ímyndið ykkur að þið séuð á hljóðum stað.  Hafið augun
lokuð þar til ég segi ykkur að opna þau aftur.

Gott

Með augun lokuð skaltu  sjá gulan ljósbolta, eins og tennisbolta skoppa upp
og niður fyrir framan þig. Fylgdu nú boltanum í huganum þar sem hann
skoppar út í stóra garðinn (almenningsgarðinn).  Í þessum garði er hægt að
gera allt það sem þér finnst skemmtilegt.

Meðan þú leikur þér þar smá stund þá sérðu engil eða ímyndaðan, sérstakan
vin ganga til þín með fallegan, stóran flugdreka.

Ef þú veist ekki hver þetta er sem kemur með flugdrekann, skaltu spyrja í
hljóði hver hann sé og hann eða hún mun segja þér það.

(*2 Setjið nú hendurnar á hjartað) Þessi vinur mun segja þér hversu
sérstakur/sérstök þú ert og hversu mikið honum þykir vænt um þig. (þögn).
Hann segir þér frá öllu því góða sem þú ert eða munt gera og hversu hreykin
hann sé af þér.(þögn).

Hann segir þér að í hvert sinn sem þú þarfnast hjálpar þurfir þú ekki að
gera annað en segja nafnið hans eða biðja um hjálp og hann mun koma og
hjálpa þér eins mikið og hann getur. (*3 settu nú hendurnar á magann)

Áður en þú flýgur flugdrekanum, þá skaltu segja þessum sérstaka vini þínum
frá öllu sem þú ert hræddur við, leiður yfir eða reiður yfir.  Hann skrifar
það niður á pappír og bindur hann við halann á flugdrekanum.  Síðan hlaupið
þið báðir eins hratt eins og þið getið og sjáið flugdrekann takast á loft
og fljúga hátt upp í skýin og alltaf fara hærra og hærra.

Hann fer svo hátt að hann hverfur með öllu því sem er að angra þig.

Þér líður svo vel núna og þessi sérstaki vinur þinn faðmar þig. (*4 settu
hendurnar utan um þig og faðmaðu sjálfan þig).

Vinur þinn segir þér hversu sérstakur þú sért af því að enginn í öllum
heiminum er eins og þú.

Nú sérðu aftur gula ljósboltann skoppa til þín og vinur þinn segir að það
sé kominn tími til að koma tilbaka til hljóða staðarins.

Þú segir við sjálfan þig þrisvar sinnum. "Ég er sérstakur, mér finnst gaman
að vera ég"

Dragðu djúpt inn andann og opnaðu augun og brostu þar til þú finnur það í
hjartanu þínu.

Núna skaltu segja við einhvern annan, "Ég er sérstakur og það ert þú líka".



Fljótandi fingur-hugleiðsla.


Þessi er einnig úr bók Karyn Mitchell

Sitjið þægilega, annað hvort á gólfinu eða í stól.  Látið hendurnar hvíla á
lærunum með lófana upp.  Leyfið fingurgómunum á fjórum fingrum að snertast
aðeins.

Fingurnir geta verið aðeins sundur.

Starðu niður á milli fingranna þar sem fingurgómarnir mætast.  Þegar þú
sérð auka fingur á milli þinna eigin skaltu rólega færa hendurnar frá hvor
annarri og fylgjast með fljótandi fingrunum sem eru á milli þinna eigin.
Siðan skaltu aðeins hreyfa einn fingur og svo annan til að hreyfa fljótandi
fingurna. Farðu alveg sundur með fingurna til að þeir slitni.


Heim hrifkjarnar   shamballa   jarðarheilun     ýmsar greinar námskeið   aðalsíða
Free Web Hosting