DNA-shamballa
Hreinsun á ígræðslum og virkjun DNA
Hugleiðsla
Hugleiðsla til að hreinsa ígræðslur og virkja DNA (ljósboðun október 1998 gegnum Hari Das Melchizedek/John Armitage)


Svo, ég Hari Das Melchizedek óska og krefst nærveru hinna uppljómuðu meistara, vetrarbrautar meistara, vetrarbrautarráðsins, Elohim, DNA aðlögunar læknahópsins, engla og erkiengla.

Ég óska einnig eftir ljósskipi yfir þessarri byggingu, yfir vinnusvæði okkar til að aðstoða við að umbreyta þeirri orku sem við ætlum að fjarlægja í þessarri hugleiðslu.

Ég bið ykkur um að draga djúpt inn andann og þegar þið dragið inn andann skuluð þið skerpa athyglina á svæðinu fyrir ofan höfuð ykkar.  Þetta er þar sem hærri orkustöðvarnar eru.  Það skiptir ekki máli þó þið vitið ekki hvar þær eru, þær eru á svæðinu fyrir ofan höfuð ykkar. Svo nú skulum við leyfa orku hreins kærleika, orku ljóssins að flæða inn, með hverjum andardrætti inn og með hverjum fráblæstri skuluð þið leyfa öllum glundroða, öllum áhyggjum, ótta sem þið hafið, leyfið öllu stressi og spennu lífs á plánetu Jörð að hverfa frá ykkur og umbreytast í kærleika. (hlé)

Svo þar sem við höldum áfram með andardráttinn inn, skynjið kærleikan, skynjið ljósið flæða inn og með hverjum fráblæstri leyfið ringulreiðinni að hverfa frá ykkur.

Þið getið einnig á þessum tíma einbeitt ykkur að hærri hjartastöðinni, sem er fyrir ofan hið líkamlega hjarta og skynjið orkuna hreyfast þar í þessarri hærri hjartastöð, hóstakirtlinum.
Það er einungis í gegnum hóstakirtilinn sem þið skynjið kærleika.  Svo með hverjum andardrætti inn leyfið sjálfum ykkur að skynja þennan kærleika. örvið kærleikan, kærleikan, kærleikan.Örvið ljósið, ljósið, ljósið.


Nú það sem ég ætla að gera er að kalla inn allan hópinn til að fjarlægja þessa orku úr efnis og andlegum líkömum ykkar og til þess að gera það þá krefst ég þess að þeir fari. Svo ég Hari Das Melchizedek óska  fyrir hönd þeirra mannvera sem hér eru að allar tvíburasálir hverfi á brott ---NÚNA! (hlé)


Nú fjarlægi ég allar kynlausar veru-NÚNA! ÚT, ÚT. (hlé)

Nú fjarlægi ég öll bönd við fjölvíða og samhliða heima og alla tálma og íbúa sem koma í veg fyrir að allir geri sér grein fyrir Guðs sjálfinu.  Ég fjarlægi alla núna. (hlé)


Nú óska ég og krefst þess að öll önnur orka, allar aðrar verur í orkusviði og efnislíkömum allra viðstaddra sé fjarlægð-NÚNA! (hlé)


Ég fjarlægi einnig núna allar ígræðslur úr efnislíkömum og andlegum líkömum-NÚNA! (hlé)

Nú fjarlægi ég einnig öll viðhengi, króka, fjölvíða ormaholur öll önnur orkubönd úr orkustöðvum og orkusviði allra NÚNA!(hlé)


Ég fjarlægi nú alla þessa orku og verur, öll fyrri heit fátæktar, sársauka, heit þrenginga, viðnáms við kærleika, viðnáms við gnótt úr orkusviði og orkustöðvum allra núna ! (hlé)

Ég Hari Das óska og krefst þess einnig að allar hindranir séu fjarlægðar hjá öllum hér sem koma í veg fyrir skyggnigáfu, dulheyrn, dulhæfileika.  Ég óska og krefst þess að rás allra og ljósboðunarhæfileikar séu virkjaðir –NÚNA!

Ég óska eftir því að aðstoðarmenn, leiðbeinendur og meistarar hafi samskipti við hvern og einn núna (3-4 mínútna hlé)


Svo nú bið ég ykkur um að halda áfram að anda djúpt og með hverjum andardrætti inn skuluð þið draga inn þennan kærleika, þetta ljós þar til  þið hafið hreinsað orkusvið ykkar og efnislíkama.(hlé).

Ég bið ykkur um að ímynda ykkur að þið séuð tvíodda kristall, það er kristall með odd báðum megin.  Toppurinn á kristalnum er um handarlengd fyrir ofan höfuð ykkar og neðri oddurinn um handarlengd fyrir neðan fætur ykkar. (Það skiptir ekki máli hvort þið sitjið, liggið eða standið).  Nú þessi kristall er hinn kristallaði ljóslíkami ykkar.


Með hverjum andardrætti inn vil ég að þið sjáið, skynjið, ímyndið ykkur, leyfið-því skiljið að, að sjá, skynja, ímynda sér, leyfa er ekkert ólíkt hvert öðru.  Ímyndun er sjónbirting. Sjáið því, skynjið, sjónbirtið, leyfið þessum tvíodda kristalli að virkjast með orku kærleikans. Þar sem þið andið inn sjáið kristallinn byrja að púlsera með ljósi, sjáið kristallinn byrja að púlsera með kærleika. Og með hverjum andardrætti eykst orkan. Sjáið, skynjið kærleikan, skynjið ljósið fylla ykkur. Örvið ljósið, ljósið, ljósið- örvið kærleikan, kærleikan, kærleikan.

Nú skuluð þið sjá annan tvíodda kristal (eða kristal með odd á báðum endum) sem gengur þvert í gegnum hinn fyrri þar sem hjartastöðin er. Sjáið þennan nýja kristal einnig með andardrætti ykkar þar sem hann virkjast með orku hreins kærleika og orku óaðskilins ljóss. Örvið ljósið, ljósið, ljósið- örvið kærleikan, kærleikan, kærleikan.


Haldið bara áfram að anda, leyfið, sjáið, ímyndið, sjónbirtið og aftur þar sem þið andið inn sjáið báða kristallana verða kraftmeiri með orku kærleikans og orku ljóssins. Nú skulum við láta þessa kristalla snúast, spinna- þið ráðið í hvaða átt þeir fara.  Og aftur ætlum við að vinna með andardráttinn. Þar sem þið snúið þessum kristöllum, í hvert sinn sem þið andið inn sjáið þá snúast hraðar og hraðar og samhliða því sem hraðinn eykst sjáið kristallana verða kraftmeiri með orku kærleikans og ljóssins.

Svo nú snúast kristallarnir, snúast, snúast, snúast, spinna, spinna, spinna-og eru nú enn kraftmeiri með orku kærleika, og eru nú orðnir enn kraftmeiri með orku ljóssins. Nú þar sem við snúum kristöllunum, þá sögðum við ykkur ekki að við ætlum að fara inn í líkamann með aðstoð þessa kristallaða ljóslíkama.
Við ætlum að smækka þennan kristalla ljóslíkama þar til hann verður svo lítill að hann kemst í gegnum vegg á einni frumu efnislíkama þíns. Svo nú með hverjum fráblæstri skuluð þið sjá, skynja, ímynda ykkur og leyfa ykkur að verða smærri, smærri, smærri minnka, minnka, minnka uns þið eruð á stærð við títuprjónshaus, minnka uns þið eruð eins og rykagn.  Nú minnka, minnka, minnka niður í stærð á bakteríu, vírus, míkrób og enn minnka, minnka, smækka, smækka, smækka.

Og nú biðjum við ykkur um að fara inn í eina frumu efnislíkama ykkar. Farið í gegnum frumuvegginn. Þið eruð svo smá að þið skemmið ekkert.  Nú skuluð þið líta í kringum ykkur inn í frumunni sjáið hið kristallaða DNA .  Hversu marga DNA erfðaþætti hafið þið virka. Þið gætuð séð DNA þræðina snúast upp, upp, gegnum frumuform ykkar, tengjast Móður/Föður Uppsprettunni, við Guð-og snúast niður, niður, niður og tengjast hjarta kristalli gyðjunnar Gaiu, plánetu jarðar og móður jarðar.  Nú sum hafið þið kannski fleiri en tvo erfðaþætti virka.  Ef svo er skuluð þið ekki hafa áhyggjur, bíðið bara uns við náum ykkur í virkjuninni. Skiljið að þessi virkjun tengir ykkur ekki einungis við æðra sjálf ykkar, sjálfsvitund ykkar heldur einnig við Móður/Föður Uppsprettuna og gyðjuna Gaiu.

Við ætlum nú að virkja fyrir ykkur DNA erfðaþætti ykkar með hinum himnesku ljóskóðum, með orku hreins kærleika, með helgri geómetríu, eldstöfum hinna helgu tungumála, lyklakóðum úr lyklum Enoks, Mahatma orkunni og Kristsljósinu.  Svo við biðjum ykkur um að sjónbirta, sjá, leyfa, ímynda ykkur DNA þenjast út, tveir þættir eftir hver öðrum og virkjast með þessum kóðum.

Sjáið nú fyrir ykkur tvo fyrstu DNA erfðaþættina-allir hafa að minnsta  kosti tvo þætti upplýsta, sjáið þessa DNA þætti snúast upp, upp til Uppsprettunnar og niður, niður inn í hjarta móður Jarðar. (hlé).  Og nú ætlum við að virkja þessa tvo þætti með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu. Sjáið þessa erfðaþætti tendrast enn frekar með þessarri orku.  Sjáið kristalinn forritast og virkjast.

Og nú skulum við bæta við tveimur erfðaþáttum í viðbót.  Aftur skuluð þið sjá þessa erfðaþætti snúast upp og upp til Móður/Föður Uppsprettunnar og niður inn í hjarta gyðjunnar Gaiu. Og aftur skulum við virkja þessa tvo erfðaþætti DNA þannig að þeir séu nú fjórir með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu. Örvið ljósið, örvið ljósið, ljósið, ljósið.

Og enn skulum við bæta við DNA þræðina þannig að þeir séu nú sex og aftur sjáum við þá snúast upp, upp til Móður/Föður Uppsprettunnar og inn í hjarta móður jarðar.  Og við skulum virkja þá með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu. Sjáið þessa erfðaþætti tendrast enn frekar með þessarri orku.  Sjáið kristalinn forritast og virkjast.


Nú skulum við enn bæta við tveim erfðaþáttum þannig að þeir séu nú átta.  Og enn skulum við sjá þá tengjast upp til Móður/Föður Uppsprettunnar og tengjast niður við hjarta Móður Jarðar. Aftur virkjum við þá með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu

Sjáið og skynjið næstu tvo erfðaþætti þar sem eru nú orðnir tíu.  Og enn sjáið þessa tíu erfðaþætti þar sem þeir snúast upp, upp til Móður/Föður Guðs, heilir og hvergi brot eða slit í keðjunni. Sjáið þá einnig snúast niður til móður jarðar.  Aftur virkjum við þá með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu. Örvið ljósið, ljósið, ljósið, örvið ljósið, ljósið, ljósið.  Örvið kærleikan, kærleikan kærleikan.

Svo nú bætum við enn við tveim erfðaþáttum þannig að þeir séu nú tólf.  Og aftur vrikjum við með því að sjá þá snúast í spíral upp, upp til Móður/Föður Uppsprettunnar og snúast niður, niður til hjarta móður jarðar. Enn virkjum við með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks,eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu. Sjáið þessa erfðaþætti tendrast enn frekar með þessarri orku.  Sjáið kristalinn forritast og virkjast.

Svo nú skulum safna saman þessum tólf erfðaþáttum og mynda búnt af DNA þráðum sem púlsera með þessum kóðum og virkjunum.  Og núna sjáið, skynjið, leyfið, ímyndið ykkur eða sjónbirtið annað tólfþátta búnt af DNA.  Og við skulum sameina það með fyrra búntinu sem búið er að virkja.  Og þar sem þessir erfðaþættir sameinast hinum fyrri virkjast þeir einnig með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu.

Nú eru tuttuogfjórir DNA erfðaþættir kóðaðir og virkjaðir.  Nú skulum við enn sjá annað búnt af tólf erfðaþáttum DNA og við skulum sameina þá, þessa tólf nýju þætti með hinum tuttuog fjórum sem þegar hafa verið virkjaðir. Leyfum þeim bara að sameinast og verða að einu búnti og virkjast einnig með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu.

Nú skulum við færa okkur frá DNA.  Þið getið hreyft ykkur inn í frumuformi ykkar með þessum örsmáa ljóslíkama ykkar.  Ferðist nú til hjartans. Hið líkamlega hjarta ykkar sem vinnur fyrir ykkur án þess að spyrja nokkurs.  Það segir ekki “ Ég elska þig ekki svo ég vil ekki vinna fyrir þig”. Svo lengi sem þið elskið sjálf ykkur, elskar hjartað ykkar ykkur og dælir blóði til sérhvers hluta líkama ykkar, út í tær og fram í fingurgóma og upp í höfuð og allt þar á milli.

Blóð ykkar er lifandi kristall, lifandi vökva kristall.  Nú ætlum við að upphefja blóðið andlega. Blóð ykkar verður að andlegu ljósi.  Svo núna þar sem blóðinu er dælt gegnum hjarta þitt, skulum við kóða hina kristölluðu náttúru þessa vökva kristals með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu. Við sjáum og skynjum vökva kristallaða blóðið púlsera gegnum líkamann, og upphefja andlega hvern hluta hans.  Skiljið að þið eruð að verða andlegt, himneskt ljós.  Örvið ljósið, ljósið, ljósið, guðlegt ljós.

Nú skiljið að þið eruð kristall, vítamínin, steinefnin, söltin og málmarnir sem eru í líkama ykkar eru einnig kristallar og nú skulum við virkja þá með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu

Örvið ljósið-örvið ljósið, ljósið, ljósið.  Sjáið skynjið, leyfið, ímyndið ykkur, sjónbirtið ykkur sjálf þar sem þið verðið guðlegt ljós.  Því það er það sem þið eruð, guðlegt ljós.  Þið eruð kærleiksverur, þið eruð ljósverur.  Það er hið náttúrulega form ykkar.

Svo nú skulum við kóða vatnið í líkama ykkar.  Vatnið er einnig lifandi vökva kristal.  Við skulum kóða vatnið með hinum himnesku ljóskóðum, með helgum rúmfræðilegum formum, lyklakóðum úr lyklum Enoks, eldstöfum hinna helgu tungumála, með hreinum kærleika, Mahatma orkunni og Kristsljósinu.

Og nú skulum við forrita allt frumuform ykkar með þessarri orku.  Ég óska þess nú og krefst að allur ótti sé fjarlægður úr frumuformi allra hér og leifar vitneskju um að hafa misst máttinn, leifar vitneskju um að hafa verið aftengdir Uppsprettunni, Móður/Föðurins og geta því ekki skynjað hreinan kærleika fyrir sjálfan sinn. Ég fjarlægi alla kóða sem koma í veg fyrir að þið njótið gnóttar á öllum sviðum.  Ég fjarlægi nú kóðana sem koma í veg fyrir að þið skínið skært og gefið kærleika frá ykkur án ótta í hjarta ykkar. Ég endurkóða frumuform ykkar með geómetrísku ljósi og geómetrískum kærleika.  Skiljið að það er það sem þið eruð-KÆRLEIKUR.

Svo nú skulum við einnig virkja og hreinsa með orku kærleika og ljóss hin þéttu líffæri efnislíkama ykkar, lifrina, nýrun og miltað-.  Ég fjarlægi allan ótta úr þessum líffærum og virkja þá með geómetrísku ljósi og lifandi himneskri ljósmandölu sem leyfir ykkur að vera sá Guð sem þið raunverulega eruð. (hlé).

Nú bið ég ykkur um að koma út úr líkamanum á hvern þann hátt sem þið viljið.  Þið getið komið út um frumuvegg einstakrar frumu, eða augu ykkar, munn, nef eða eyru. Komið út úr líkamanum –NÚNA!


Og nú með hverjum andardrætti inn skulum við láta þennan ljóslíkama stækka, þar til hann sameinast hinum efnislega líkama ykkar.  Sjáið ljóslíkamann stækka, stækka, stækka og ennfrekar stækka og sameinist efnislíkama ykkar NÚNA eftir að ljóslíkaminn náði fullri stærð.

Ég óska þess fyrir hönd ykkar allra að aðstoðarmenn ykkar, leiðbeinendur og meistarar sem vinna með ykkur, hið fjölviða ráð sem þið vinnið í (þó þið vitið það ekki á þessum tímapunkti)aðstoði ykkur  og ég óska þess og krefst fyrir ykkar hönd að þessar virkjanir, þessar hreinsanir verði stöðugar og sú orka og þær verur sem hreinsaðar hafa verið snúi ekki aftur.

Svo nú bið ég ykkur um að vinna með andardráttinn og byrja að hreyfa ykkur rólega, höfuðið, fingur og tær, kannski yppta öxlum en hreyfið ykkur ekki of snögglega þar sem þið gætuð verið aðeins óstöðug eftir þessar hreinsanir og virkjanir sem átt hafa sér stað.  Leyfið vitund ykkar að koma rólega til baka inn í líkamann.




Heim    ýmsar greinar  shamballa hrifkjarnar    námskeið   jarðarheilun   aðalsíða
Free Web Hosting